Manchester City og Burnley eigast við í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en leikurinn fer fram á Etihad-leikvanginum klukkan 19:00.
Pep Guardiola gerir nokkrar breytingar. Kevin de Bruyne, Raheem Sterling, Aymeric Laporte og Gabriel Jesus eru allir á bekknum. Auk þess kemur Kyle Walker á bekkinn en hann var að glíma við meiðsli í sigrinum á Arsenal á dögunum.
Phil Foden og Sergio Aguero eru báðir í byrjunarliði City.
Jay Rodriguez er í fremstu víglínu hjá Burnley en Jóhann Berg Guðmundsson er fjarri góðu gamni í dag.
Byrjunarlið Man City: Ederson, Cancelo, Otamendi, Fernandinho, Zinchenko, Rodrigo, D Silva, Foden, Bernardo, Mahrez, Aguero.
Byrjunarlið Burnley: Pope, Lowton, Tarkowski, Mee, Taylor, Brownhill, Westwood, Cork, McNeil, Rodriguez, Vydra.
Athugasemdir