Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. júní 2020 10:15
Magnús Már Einarsson
Carragher: Everton verðskuldaði sigur gegn Liverpool
jamie Carragher.
jamie Carragher.
Mynd: Getty Images
„Mér fannst Everton verðskulda að vinna," sagði Jamie Carragher, sérfræðingur Sky, eftir markalaust jafntefli Everton og Liverpool í gær.

Tom Davies átti skot í stöng fyrir Everton í leiknum og Alisson átti öfluga vörslu frá Dominic Calvert-Lewin.

„Þú getur talað um að Liverpool hafi verið meira með boltann en þetta snýst um hvaða færi þú skapar."

„Everton leyfði Liverpool að vera með boltann því að þeir vita að þeir geta ekki mætt þeim þar."

„Það var auðvelt fyrir Liverpool að vera mikið með boltann en þegar þú ert svona mikið með boltann á vallarhelmingi andstæðingsins þá snýst þetta um það hvað þú gerir við hann."

Athugasemdir
banner
banner
banner