Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. júní 2020 07:40
Magnús Már Einarsson
Fylkismenn bíða ennþá eftir svörum með Castillion
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Ennþá er óvíst hvort framherjinn Geoffrey Castillion komi til Fylkis á láni frá Persib Bandung í Indónesíu.

Castillion skoraði tíu mörk í Pepsi Max-deildinni með Fylki í fyrra en hann var þá á láni frá FH.

Í vetur samdi Hollendingurinn við Persib Bandung en ekki er spilað í Indónesíu þessa dagana vegna kórónaveirunnar. Fylkismenn bíða svara hvort Castillion megi koma á láni þar til keppni hefst í Indónesíu.

„Við vonum að hann sé á leiðinni en stjórnarmenn verða að svara því," sagði Atli Sveinn Þórarinsson, þjálfari Fylkis, í viðtali eftir 2-1 tapið gegn Breiðabliki í gær.

„Við erum að vonast eftir svörum á hverjum degi frá Indónesíska sambandinu en það er lítið um svör þar."
Atli Sveinn: Skítt að fá á sig mark úr föstu leikatriði
Athugasemdir
banner
banner