U21 landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson átti stórkostlegan leik þegar AGF vann Midtjylland í gær. Jón Dagur skoraði þrennu og lagði upp í 4-3 sigri. Algjörlega magnaður leikur hjá honum.
Í umfjöllun staðarblaðsins í Árósum að nafni Stiften fær Jón Dagur mikið hrós fyrir frammistöðu sína.
Stiften gefur leikmönnum AGF einkunnir og auðvitað fær Jón Dagur tíu í einkunn; ekki annað hægt. Næst hæsta einkunn sem leikmaður í liði AGF fær er sjö.
„Ég hef ekki hugmynd hvaðan þessi mörk komu," sagði Jón Dagur að því er kemur fram hjá Tipsbladet. „Ef þú lítur á leikinn í heild sinni þá fannst mér við spila góðan leik."
Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum.
Athugasemdir