Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 22. júní 2020 09:40
Magnús Már Einarsson
Klopp: Megum ekki taka því sem gefnu að hafa Alisson
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hrósaði markverðinum Alisson í hástert eftir markalaust jafntefli gegn Everton í gær.

Alisson átti öfluga vörslu frá Dominic Calvert-Lewin í leiknum og hann fékk hrós frá Klopp eftir leik.

„Við megum ekki taka því sem gefnu að hafa hann," sagði Klopp eftir leik.

„Hann var algjörlega framúrskarandi. Þetta er það sem heimsklassa markvörður gerir."

„Hann hefur nánast ekkert að gera í 90 mínútur og síðan er hann mættur."

Athugasemdir
banner
banner