Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. júní 2020 08:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar ekki viss um hvenær miðverðir KR verða klárir
Finnur Tómas og Arnór Sveinn meiddust báðir gegn Val.
Finnur Tómas og Arnór Sveinn meiddust báðir gegn Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Finnur Tómas Pálmason, sem mynduðu sterkt miðvarðarpar hjá KR á síðustu leiktíð, spiluðu ekki með liðinu gegn HK á laugardag; í leik sem tapaðist 3-0.

Aron Bjarki Jósepsson og Gunnar Þór Gunnarsson voru þess í stað í miðvarðarstöðunum.

Rúnar Kristinsson sagði síðasta mánudag að staðan með Arnór og Finn væri óvíst og tók hann í sama streng eftir tapleikinn gegn HK.

„Þeir eru enn meiddir og þess vegna gátu þeir ekki spilað. Við vitum ekki hvenær þeir verða tilbúnir," sagði Rúnar.

Næsti leikur Íslandsmeistara KR er bikarleikur gegn Vængjum Júpiters á þriðjudagskvöld. Þá er næsti deildarleikur liðsins útileikur gegn ÍA næstkomandi sunnudag.
Rúnar Kristins: Þeir unnu okkur sannfærandi
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner