Enski miðjumaðurinn Phil Foden er búinn að koma Manchester City yfir gegn Burnley í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Foden, sem er aðeins 19 ára gamall, er í byrjunarliði City en fyrir leikinn var hann aðeins búinn að spila 379 mínútur í deildinni.
Hann þakkaði traustið og kom City yfir á 23. mínútu með laglegu skoti fyrir utan teig.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan en þetta var annað mark hans í deildinni. Hann skoraði einnig gegn Arsenal í síðustu umferð.
Sjáðu markið hjá Foden
Athugasemdir