Andri Adolphsson var að öðrum ólöstuðum maður leiksins í 4-1 sigri Vals á Víkingum í dag.
Andri skoraði tvö góð mörk og átti heilt yfir mjög góðan leik á vinstri væng Vals.
Andri skoraði tvö góð mörk og átti heilt yfir mjög góðan leik á vinstri væng Vals.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 1 Víkingur R.
„Við ætluðum bara að eiga góðan leik hér í dag eftir þennan erfiða leik úti sem við vorum svekktir að tapa og við gerðum það bara ágætlega þó svo við höfum kannski spilað betri leiki en fjögur mörk það er frábært.“
Andri var á láni hjá uppeldisfélagi sínu ÍA fyrr á tímabilinu en er nú kominn aftur og er að senda skýr skilaboð um að hann eigi heima í liðinu.
„Já algjörlega maður bara reynir að leggja sig fram í alla leiki og spila sem bestan leik og það gekk vel í dag og þetta er bara flott.“
Nánar er rætt við Andra í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir