Fyrsti leikur 13. umferðar Pepsi-deildar karla er á milli Fjölnis og ÍBV í Grafarvoginum á eftir. Hann hefst klukkan 14:00.
Bæði þessi lið eru í fallbaráttu með 12 stig hvort eftir 12 leiki í tíunda til níunda sæti deildarinnar. Tapliðið í dag gæti farið niður í fallsæti þar sem Fylkir er ekki langt á eftir, í 11. sæti deilarinnar með 11 stig en Fylkismenn eiga leik við KA á eftir.
Fjölnir tapaði dramtískt gegn Breiðablik í síðustu umferð. Ólafur Páll Snorrason gerir engar breytingar á byrjunarliði sínu frá þeim leik - mætir með nákvæmlega sama byrjunarlið.
ÍBV spilaði við Sarpsborg í síðustu viku og gerir þrjár breytingar frá þeim leik. Derby Carrillo kemur í markið fyrir Halldór Pál Geirsson, Gunnar Heiðar Þorvaldsson byrjar í staðinn fyrir Shahab sem er ekki í hóp og Jonathan Ian Franks kemur inn fyrir Alfreð Már Hjaltalín.
Byrjunarlið Fjölnis:
12. Þórður Ingason (m)
2. Mario Tadejevic
5. Bergsveinn Ólafsson
7. Birnir Snær Ingason
9. Þórir Guðjónsson
10. Ægir Jarl Jónasson
11. Almarr Ormarsson
24. Torfi Tímoteus Gunnarsson
26. Ísak Óli Helgason
28. Hans Viktor Guðmundsson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson
Byrjunarlið ÍBV:
22. Derby Rafael Carrillo (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
5. David Atkinson
6. Dagur Austmann
7. Kaj Leo í Bartalsstovu
8. Priestley Griffiths
11. Sindri Snær Magnússon (f)
26. Felix Örn Friðriksson
30. Atli Arnarson
34. Gunnar Heiðar Þorvaldsson
77. Jonathan Franks
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Leikir dagsins:
16:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)
17:00 KA-Fylkir (Akureyrarvöllur)
17:00 KR-Stjarnan (Alvogenvöllurinn)
19:15 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir