Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. júlí 2018 22:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
John Terry neitar því að hann sé að hætta
Terry er ekki hættur.
Terry er ekki hættur.
Mynd: Getty Images
John Terry, fyrrum leikmaður Chelsea og Aston Villa hefur stigið fram og neitað því að hann sé að leggja skóna á hilluna.

Orðrómar höfðu verið á kreiki um að þessi 37 ára gamli leikmaður hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir að hafa yfirgefið Aston Villa eftir síðasta tímabil. Fyrir það spilaði hann í 19 ár sem leikmaður á Stamford Bridge.

En Terry hefur neitað þeim orðrómi og segir að hann sé að skoða hvaða möguleikar eru í boði fyrir sig. Tilkynnti hann um málið í færslu á Instagram þar sem hann sagðist vera að íhuga málin ásamt fjölskyldu sinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner