Markvörðurinn Jökull Blængsson er kominn aftur í Fjölni eftir lánssdvöl hjá Haukum.
Jökull er mættur strax í leikmannahóp Fjölnis fyrir leik liðsins gegn ÍBV í dag. Hann er á varamannabekknum. Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Jökull, sem er 21 árs, hefur spilað alla 12 leiki Hauka í Inkasso-deildinni í sumar.
Hans síðasti leikur fyrir Hafnarfjarðarfélagið kom gegn Þór á fimmtudag. Í þeim leik fékk Jökull á sig fjögur mörk, í 4-1 tapi.
Haukar eru að missa leikmenn í byrjun félagaskiptagluggans. Auk Jökuls eru Davíð Ingvarsson og Baldvin Sturluson farnir frá félaginu. Davíð var í láni frá Blikum en Baldvin fór til KFG.
Það er spurning hvort Haukar semji við annan markvörð eða ekki.
Athugasemdir