Heimild: Sky Italia
Brasilíumaðurinn Malcom sem spilar fyrir franska liðið Bordeaux er sagður vera á leið í læknisskoðun hjá ítalska liðinu Roma í vikunni.
Malcom hefur verið orðaður við fjöldan allan af liðum í langan tíma og þá aðallega stórlið.
Því kom það svolítið á óvart þegar fregnir bárust af því að Everton og Fulham væru að keppast um að fá leikmanninn í sínar raðir.
Samkvæmt Eurosport hefur Roma boðið 36-37 milljónir evra auk bónusgreiðslna en Bordeaux heldur sig við 40 milljón evra verðmiðann.
Athugasemdir