Manchester United tók á móti San Jose Earthquakes í æfingaleik í dag.
Leikurinn for rólega af stað en United fékk betri færi í fyrri hálfleik. Alexis Sanchez átti meðal annars aukaspyrnu sem fór rétt framhjá markinu auk þess sem Bailly skallaði í þverslánna.
San Jose skipti út öllu byrjunarliði sínu í hálfleik á meðan United gerði þó nokkrar breytingar. Lee Grant mætti í markið auk þess sem Mata og McTominay fengu spilatíma.
United var í vandræðum í síðari hálfleik og San Jose var óheppið að skora ekki. Það var helst vegna frábærrar frammistöðu Lee Grant að liðið náði að halda út. Markalaust jafntefli niðurstaðan í ágætis leik. Eina af vörslu Grant má sjá hér að neðan.
Now THAT was definitely Grant! A magnificent save from the #MUFC keeper. 👐 #MUTOUR
— Manchester United (@ManUtd) July 22, 2018
Watch the game live on #MUTV: https://t.co/vnmRvrOFyZ pic.twitter.com/ruYreqDddA
Athugasemdir