Óskar Örn Hauksson, fyrirliði KR, skoraði eina mark leiksins þegar að KR sigraði Stjörnuna á Alvogenvellinum í dag. Markið var einkar glæsilegt en það kom beint úr aukaspyrnu.
„Ég er bara hrikalega ánægður með erfið en góð þrjú stig. Mér fannst við fínir í fyrri hálfleik. Stjarnan spilar erfiðan bolta en þeir fengu engin færi sem að ég man eftir þar sem að við vorum þéttir varnarlega." sagði Óskar eftir leik en þetta var fyrsti leikurinn í sumar þar sem að Stjarnan skorar ekki.

Lestu um leikinn: KR 1 - 0 Stjarnan
Óskar Örn fór fyrir sínum mönnum í dag og var duglegur að láta í sér heyra og drífa sína menn áfram.
„Við erum búnir að vera að fá okkur mörk á vondum augnablikum í sumar. Ég þurfti aðeins að kveikja í mönnum svo að við myndum ekki detta í svoleiðis rugl."
KR fer uppí fjórða sæti með sigrinum í dag og mætir Grindavík í næstu umferð heima. Óskari lýst vel á framhaldið.
„Við erum búnir að stimpla okkur aðeins inn og erum á öxlunum á liðunum fyrir ofan okkar þannig að við erum bara í ágætis málum." sagði Óskar að lokum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir