banner
   sun 22. júlí 2018 17:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sky: Mikill áhugi á Martial - United gæti framlengt
Anthony Martial.
Anthony Martial.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Sky Sports er mikill áhugi á Anthony Martial, leikmanni Manchester United.

Chelsea og þýsku félögin Borussia Dortmund og Bayern München eru áhugasöm um leikmanninn og vilja fá hann í sínar raðir.

Martial er í æfingaferð með Man Utd í Bandaríkjunum og á ár eftir af samningi sínum við félagið. Í síðasta mánuði greindi umboðsmaður hans frá því að Martial vildi yfirgefa United en enn sem komið er hefur ekkert gerst og er hann enn leikmaður Manchestrer United.

Samkvæmt sömu frétt Sky er Man Utd ekki að fara að selja Frakkann. Hann er með ákvæði í samningi sínum sem gerir Man Utd kleift að framlengja hann um eitt ár. United er að skoða að gera það.

Man Utd mætir San Jose Earthquakes í æfingaleik klukkan 21 í kvöld. Martial byrjaði í 1-1 jafntefli gegn Club America í fyrsta æfingaleik undirbúningstímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner