Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 22. júlí 2020 23:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alvaro: Takk frá mér til ykkar
Lengjudeildin
Alvaro skoraði eitt í kvöld og lagði upp eitt.
Alvaro skoraði eitt í kvöld og lagði upp eitt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Izaro með boltann gegn ÍBV.
Izaro með boltann gegn ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Mér fannst við eiga fínan leik, við vorum þolinmóðir í fyrri hálfleik því við vitum að Magni spilar alltaf vel þegar þeir mæta okkur. Við vorum aðeins rólegri eftir að Jónas skoraði fyrsta markið," sagði Alvaro Montejo, einn af markaskorurum Þórs, eftir sigur gegn Magna.

Lestu um leikinn: Þór 3 -  0 Magni

„Í síðustu tveimur leikjum hefur okkar tilfinning verið að við hefðum átt að fá fleiri stig og því höfðum við trú á að með slíkri frammistöðu og þolinmæði myndum við ná úrslitum eins og við svo gerðum."

Alvaro var næst spurður út í eigin frammistöðu í kvöld og var hann ekki nægilega sáttur með sjálfan sig þrátt fyrir mark og stoðsendingu. Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.

Hann var næst spurður út í stoðsendinguna sína á Izaro í þriðja marki Þórs. Hvernig var að sjá vin sinn komast á blað?

„Þetta er góð tilfinning. Hann hefur verið í smá brekku í upphafi tímabilsins en við vissum allir að hann væri mjög góður leikmaður. Hann þurfti á þessu marki að halda og við vorum allir mjög ánægðir fyrir hans hönd. Ég tel að það munu mörg mörk fylgja í kjölfarið."

Alvaro hefur skorað fimm mörk í leikjunum sjö. Stefnir hann á gullskóinn?

„Nei, ég held ekki. Ég vil alltaf bæta við mitt hæsta [16 mörk 2016] en ég vil bara vinna, vinna alla leiki það er mitt markmið."

Alvaro var að lokum spurður út í stuðningsmenn Þórsara sem studdu vel við bakið á sínum mönnum í kvöld. Hefur það mikil áhrif á leikmennina inn á vellinum að heyra í stuðningnum?

„Auðvitað. Þeir eru stór hluti af félaginu. Þetta er félag með stórt hjarta og fólkið sem styður Þór elskar félagið. Við erum mjög þakkláttir þegar þeir mæta og styðja við okkur. Takk frá mér til ykkar." sagði Alvaro að lokum.
Athugasemdir
banner
banner