Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. júlí 2020 10:32
Elvar Geir Magnússon
Bild: Havertz biður um að fá að fara til Chelsea
Kai Havertz í viðtali.
Kai Havertz í viðtali.
Mynd: Getty Images
Þýska blaðið Bild segir að Kai Havertz ætli að segja æðstu mönnum hjá Bayer Leverkusen að hann vilji að gengið sé frá sölu til Chelsea.

Ensk úrvalsdeildarfélög hafa lengi horft til Havertz en Chelsea leggur mikla áherslu á að fá þennan 21 árs leikmann.

Sögusagnir hafa verið í gangi um að Havertz hafi náð munnlegu samkomulagi við Chelsea.

Bild segir að samkvæmt sínum heimildum muni Havertz ræða við Leverkusen á morgun og biðja félagið um að ganga frá sölunni.

Chelsea hefur þegar látið til sín taka á leikmannamarkaðnum og tryggt sér þýska sóknarmanninn Timo Werner frá RB Leipzig fyrir næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner