Frank Lampard, stjóri Chelsea, er mjög hrifinn af Declan Rice, 21 árs miðjumanni West Ham, og langar að fá hann á Stamford Bridge.
Samkvæmt heimildum The Times er Chelsea tilbúið að bjóða þá Michy Batshuayi og Ross Barkley sem hluta af tilboði í Rice.
Samkvæmt heimildum The Times er Chelsea tilbúið að bjóða þá Michy Batshuayi og Ross Barkley sem hluta af tilboði í Rice.
Times segir þá frá því að West Ham hafi áhuga á hvorugum leikmanninum. Chelsea er þá samkvæmt slúðurblöðum sagt ætla að selja Jorginho til að fjármagna kaup á Rice.
West Ham var í fallbaráttu og ef félagið hefði fallið hefði það gert Chelsea auðveldara fyrir að krækja í Rice en áframhaldandi vera lærisveina David Moyes í úrvalsdeildinni gerir stöðu þeirra, gagnvart Rice og áhuga Chelsea, sterkari.
Athugasemdir