Eiður Smári Guðjohnsen var ekki nógu sáttur með leik sinna manna í 0-0 jafntefli gegn KA í Kaplakrika fyrr í kvöld. Leikurinn var frekar tíðindalítill og voru heimamenn í vandræðum með að brjótast í gegnum þéttan og góðan varnarleik KA.
Lestu um leikinn: FH 0 - 0 KA
„Ég hefði frekar viljað vinna, það er klárt. Ég er samt ekki viss miðað við leik minna manna að við hefðum átt skilið að vinna, ég held að 0-0 hafi bara verið nokkuð sanngjörn úrslit.''
„Við náðum lítið að stjórna hraðanum á leiknum sérstaklega í fyrri hálfleik og koma okkur í góðar stöður svo það er margt sem þarf að vinna í''
Hvað var það sem klikkaði svona mikið hjá FH?
„Við vorum klaufskir, gáfum boltann alltof oft frá okkur, það voru sendingar sem var lítil sannfæring í og við þurfum að læra það að þegar lið sitja til baka þá þurfum við að keyra upp hraðann og við þurfum að finna lausnir á því.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir