Ingibergur Kort Sigurðsson var frekar svekktur en sáttur eftir 2-2 jafntefli Fjölnis við KR á Meistaravöllum fyrr í kvöld. Ingibergur kom Fjölnismönnum yfir örfáum sekúndum eftir að hafa komið inná en það dugði skammt því KR jafnaði nánast um leik. Fjölnir situr enn á botni deildarinnar eftir þetta jafntefli en KR-ingar eru á hinum endanum.
Lestu um leikinn: KR 2 - 2 Fjölnir
„Ég er svekktur eiginlega, við hefðum getað klárað þennan leik. Við fengum tvo góða möguleika sem við áttum bara að nýta.''
Hvað var upplegg Fjölnismanna fyrir leik kvöldsins?
„Bara verjast fyrst og fremst, loka markinu og fá ekki mark á okkur eftir 5 mínútur.''
Hvað taka Fjölnismenn með sér úr þessum leik?
„Við eigum Val næst, við verðum að fara jafn brjálaðir inn í þann leik eins og við komum í þennan leik.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir