Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 22. júlí 2020 10:54
Elvar Geir Magnússon
Lokaumferð Championship í kvöld - Þrjú lið berjast um að fylgja Leeds beint upp
Slaven Bilic er stjóri West Brom.
Slaven Bilic er stjóri West Brom.
Mynd: Getty Images
Scott Parker er stjóri Fulham.
Scott Parker er stjóri Fulham.
Mynd: Getty Images
Lokaumferð ensku Championship-deildarinnar fer fram í kvöld og er í mörg horn að líta. Flest augu beinast að baráttunni um annað sætið, að fylgja Leeds beint upp í úrvalsdeildina.

Þrjú lið eiga möguleika á að tryggja sér úrvalsdeildarsæti í kvöld en tvö lið komast beint upp úr deildinni, sæti Leeds í deild þeirra bestu er öruggt. Allir leikirnir fara fram klukkan 18:30.

West Bromwich Albion - QPR

West Bromwich Albion kemst upp ef liðið vinnur QPR eða nær hagstæðari úrslitum eða jafnar úrslit Brentford og Fulham. Ef Fulham gerir jafntefli og Brentford og West Brom tapa bæði þá fer West Brom upp.

Brentford - Barnsley

Brentford fer upp ef liðið nær betri úrslitum en West Brom eða með jafntefli ef West Brom tapar og Fulham vinnur ekki.

Wigan Athletic - Fulham

Fulham getur bara náð öðru sætinu ef liðið vinnur Wigan, West Brom tapar og Brentford nær ekki að vinna Barnsley.

BARÁTTAN UM AÐ FARA Í UMSPIL
Liðin sem enda í sætum 3-6 fara í umspil um síðasta lausa sætið í ensku úrvalsdeildinni. Líklegast er að Nottingham Forest og Cardiff City verði með í umspilinu.

Cardiff City - Hull City
Nottingham Forest - Stoke City
Reading - Swansea City

Fallbaráttan er svo æsileg svo vægt sé til orða tekið en þrjú lið falla, stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.

Birmingham City - Derby County
Brentford - Barnsley
Cardiff City - Hull
Leeds United - Charlton Athletic
Luton Town - Blackburn Rovers
Millwall - Huddersfield Town
Sheffield Wednesday - Middlesbrough
Wigan Athletic - Fulham
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
2 Leicester 42 28 4 10 79 38 +41 88
3 Leeds 43 26 9 8 76 34 +42 87
4 Southampton 42 25 9 8 84 54 +30 84
5 West Brom 43 20 12 11 66 42 +24 72
6 Norwich 43 21 8 14 76 60 +16 71
7 Hull City 42 18 11 13 62 54 +8 65
8 Coventry 42 17 12 13 66 52 +14 63
9 Middlesbrough 43 18 9 16 61 56 +5 63
10 Preston NE 43 18 9 16 56 60 -4 63
11 Cardiff City 43 18 5 20 48 60 -12 59
12 Bristol City 43 16 10 17 50 46 +4 58
13 Sunderland 43 16 8 19 52 50 +2 56
14 Swansea 43 14 11 18 53 62 -9 53
15 Watford 43 12 16 15 59 58 +1 52
16 Millwall 43 13 11 19 42 55 -13 50
17 Blackburn 43 13 10 20 57 71 -14 49
18 Plymouth 43 12 12 19 58 66 -8 48
19 QPR 43 12 11 20 40 57 -17 47
20 Stoke City 43 12 11 20 41 60 -19 47
21 Birmingham 43 12 9 22 48 64 -16 45
22 Huddersfield 43 9 17 17 47 70 -23 44
23 Sheff Wed 43 12 8 23 36 67 -31 44
24 Rotherham 43 4 11 28 32 85 -53 23
Athugasemdir
banner
banner