Sveindís Jane Jónsdóttir átti stórleik í stórleik umferðarinnar í Pepsi Max-deildinni.
Hún skoraði þrennu í 4-0 sigrinum á Val á Kópavogsvelli. „Þvílík frammistaða hjá Sveindísi! Það fór ekkert brjálæðislega mikið fyrir henni í fyrri hálfleik en hún tók yfir þann seinni og gerði út um leikinn með fyrstu þrennunni sinni í efstu deild. Frábær leikmaður sem er að blómstra í nýju hlutverki í sumar," skrifaði Mist Rúnarsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum.

Vísir.is hefur birt myndband af mörkunum úr leiknum og má sjá þau hér að neðan.
Sveindís var í stuði eftir leikinn og áritaði takkaskó frá ungum aðdáendum.
„Þau voru fín. Ekkert eitthvað stórkostleg. Ég bara lagð‘ann," sagði Sveindís um mörkin sín þrjú í leiknum, en hún hefur núna skorað sex mörk í fimm deildarleikjum í sumar. Sveindís er 19 ára og á framtíðina fyrir sér.
Athugasemdir