Markvörðurinn Dino Hodzic gerði sér lítið fyrir og varði sína fjórðu vítaspyrnu í röð þegar Kári vann 1-0 sigur á Dalvík/Reyni í 2. deild karla í kvöld.
Smelltu hér til að sjá öll úrslit kvöldsins í 2. deild.
Smelltu hér til að sjá öll úrslit kvöldsins í 2. deild.
Hodzic varði tvær vítaspyrnur gegn ÍR í fimmtu umferð og varði hann einnig víti í 5-0 sigrinum á Víði í sjöttu umferðinni. Hann var svo aftur á ferðinni þegar hann varði víti gegn Dalvík/Reyni í kvöld.
Hann er stór og stæðilegur og erfitt að koma boltanum fram hjá honum af vítapunktinum.
Hodzic starfar á Akranesvelli og var hann mættur í vinnuna beint eftir leik að gera allt klárt fyrir leik ÍA og Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla á vellinum á morgun.
Hér að neðan má sjá mynd sem Lúðvík Gunnarsson birti á Twitter.
„Back to work” sagði @trideset_jedan eftir að hafa varið fjórða vítið í röð. Geggjaður náungi 👌#KáriNation pic.twitter.com/F2Kkdh3Gol
— Lúðvík Gunnarsson (@lulligunn) July 22, 2020
Athugasemdir