Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. júlí 2022 22:20
Brynjar Ingi Erluson
Sassuolo samþykkir tilboð West Ham í Scamacca
Gianluca Scamacca gengur til liðs við West Ham
Gianluca Scamacca gengur til liðs við West Ham
Mynd: EPA
Ítalski landsliðsmaðurinn Gianluca Scamacca mun ganga í raðir West Ham frá Sassuolo en félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð. Þetta kemur fram á Sky Sports í kvöld.

West Ham hefur verið í viðræðum við Sassuolo um Scamacca síðustu vikur en franska félagið Paris Saint-Germain var lengi vel í baráttunni um leikmanninn.

PSG ákvað að hætta við kaupin á Scamacca og fékk liðið Hugo Ekitike í staðinn á láni frá Reims og það West Ham til mikillar ánægju en félagið hefur nú náð samkomulagi við Sassuolo um kaup á Scamacca.

West Ham greiðir samtals 35,5 milljónir punda fyrir framherjann sem mun nú ræða við enska félagið um kaup og kjör áður en hann skrifar undir langtímasamning. Sassuolo fær 10 prósent af næstu sölu leikmannsins.

Scamacca skoraði 16 mörk í Seríu A á síðustu leiktíð og þá 7 landsleiki fyrir A-landslið Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner