Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 22. júlí 2022 10:37
Elvar Geir Magnússon
Wijnaldum á förum frá PSG
Georginio Wijnaldum.
Georginio Wijnaldum.
Mynd: EPA
Samkvæmt fréttum er Georginio Wijnaldum á förum frá Paris Saint-Germain. Sagt er að hann og félagið hafi komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að best sé fyrir báða aðila að leiðir skilji.

Wijnaldum gekk í raðir PSG á frjálsri sölu fyrir ári síðan, þegar samningur hans við Liverpool rann út.

Wijnaldum er nú í leit að nýjum vinnufélögum og sagt er að PSG sé tilbúið að lána hann. Reynt verði að klára málin sem fyrst.

Wijnaldum hefur verið orðaður við Roma en ítalska félagið er þó ekki búið að leggja fram formlegt tilboð í hollenska miðjumanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner