Arsenal og Chelsea mætast kl 15:30 í Lundúnarslag í Ensku Úrvalsdeildinni í dag.
Byrjunarliðin eru klár. Arsenal gerir þrjár breytingar á sínu liði frá 2-0 tapi liðsins gegn nýliðum Brentford um síðustu helgi.
Ben White er veikur og er því ekki með, Callum Chambers og Florin Balogun setjast á bekkinn. Cedric Soares, Rob Holding og Bukayo Saka koma inn í liðið í þeirra stað. Aubameyang og Ramsdale eru komnir á bekkinn.
Romelu Lukaku byrjar sinn fyrsta leik fyrir Chelsea. Hann kemur inn í liðið í stað Timo Werner. Pulisic er með Covid og er því ekki með í dag, Kai Havertz kemur inn í hans stað. Þá er Reece James í liðinu á kostnað hins unga Trevoh Chalobah.
Arsenal: Leno, Soares, Holding, Mari, Tierney, Lokonga, Xhaka, Pepe, Smith Rowe, Martinelli, Saka
Chelsea: Mendy, Christensen, Rudiger, Azpilicueta, James, Jorginho, Kovacic, Alonso, Mount, Havertz, Lukaku
Athugasemdir