Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. ágúst 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
David Luiz að semja við félag í Brasilíu
David Luiz.
David Luiz.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn David Luiz virðist vera búinn að finna sér nýtt félag til að spila fótbolta með.

Luiz yfirgaf Arsenal eftir síðasta tímabil og svo virðist sem hann sé að snúa til heimalands síns eftir flottan feril í Evrópu.

Samkvæmt fjölmiðlamanninum Pedro Almeida, þá er Luiz að ganga í raðir Flamengo í Brasilíu. Það eina sem á eftir að nást samkomulag um er greiðsla við umboðsmann leikmannsins.

Luiz er 34 ára gamall og var hann á mála hjá Arsenal frá 2019 til 2021. Þar áður spilaði miðvörðurinn með Chelsea, Paris Saint-Germain og Benfica.

Hann á þá að baki 57 A-landsleiki fyrir Brasilíu. Í þeim hefur hann skorað þrjú mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner