Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. ágúst 2021 15:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frábær árangur Man Utd á útivelli - Jafna met Arsenal
Mynd: EPA
Southampton og Manchester United gerðu jafntefli 1-1 í Ensku Úrvalsdeildinni í dag.

Fred varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í fyrri hálfleik en Mason Greenwood jafnaði metin í þeim síðari eftir frábæran undirbúning hjá Bruno og Pogba.

Eftir frábæra frammistöðu liðsins gegn Leeds í fyrstu umferðinni bjuggust United menn væntanlega við betri úrslitum í dag.

Árangur United á útivelli hefur verið frábær að undanförnu en liðið hefur ekki tapað útileik í síðustu 27 leikjum, 17 sigrar og 10 jafntefli. Þetta er jöfnun á meti Arsenal sem tapaði ekki í 27 útileikjum frá árunum 2003-2004.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner