Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. ágúst 2021 21:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jón Guðni svaraði bauli með dónaskap
Jón Guðni Fjóluson.
Jón Guðni Fjóluson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Jón Guðni Fjóluson spilaði allan leikinn í dag þegar Hammarby gerði jafntefli við Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni, 2-2.

Stuðningsmenn Elfsborg bauluðu vel á Jón Guðna í leiknum og hann tók vel eftir því.

Hammarby hefur spilað tvisvar við Elfsborg með stuttu millibili. Um síðustu helgi fór í dreifingu myndband þar sem íslenski varnarmaðurinn virtist segja eitthvað við leikmann Elfsborg.

Það voru ýmsar getgátur um hvað Jón Guðni hefði sagt, var því meðal annars kastað fram hvort það hefðu verið rasísk ummæli. Elfsborg vildi ekki meina það.

Þrátt fyrir það var baulað á Jón Guðna í dag og því fagnað þegar hann gerði mistök. Hann ákvað á einum tímapunkti að svara stuðningsmönnum með dónalegri handabendingu eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.

Sjá einnig:
Viðar Örn, Viðar Ari og Hólmar skoruðu - Hákon fékk tækifæri


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner