Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. ágúst 2021 14:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pique fór ekki að ráðum lækna - Frá í mánuð?
Mynd: EPA
Barcelona gerði 1-1 jafntefli gegn Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í gær.

Læknar Barcelona mæltu gegn því að Gerard Pique myndi spila þennan leik. Hann hlustaði ekki á það og æfði vel fyrir leikinn.

Honum leið eins og hann væri í toppformi og klár í slaginn. Hann var í byrjunarliðinu í hjarta varnarinnar ásamt Eric Garcia. Hann lagðist þó í grasið eftir um hálftíma leik og bað um skiptingu.

Það kom í ljós eftir rannsóknir að meiðsli á fæti munu halda honum frá knattspyrnuiðkun næstu þrjár til fjórar vikurnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner