Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. ágúst 2021 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Solskjær heillaður af Varane
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær var á blaðamannafundi fyrir leik liðsins í dag gegn Southampton í Ensku Úrvalsdeildinni.

Þar var hann spurður út í varnarmanninn Raphael Varane sem er nýgenginn til liðs við félagið.

„Hann vill læra inn á leikstílinn okkar. Hann er metnaðarfullur, hann vill ná góðu líkamlegu formi. Það er orðið svolítið síðan hann lék á EM. Hann er mikill atvinnumaður. Þú getur séð bikarana hans en þú sérð líka hvað hann hefur gert utanvallar."

„Það eru ekki mörg vandamál, sem þjálfari þá er ég mjög ánægður með hann. Hann hefur heillað mig alveg frá því hann mætti hingað."

Varane var kynntur sem leikmaður Man Utd á leik liðsins gegn Leeds um síðustu helgi. Spurning hvort hann verði í liðinu í fyrsta sinn í dag.
Athugasemdir
banner
banner