Riðlakeppninni í 4. deild karla er lokið og núna er það ljóst hvaða átta lið munu bítast um það að komast upp um deild, í 3. deildina.
Það eru tvö laus sæti í boði. Úrslitakeppnin hefst næstkomandi föstudag. Liðin tvö sem komast í sjálfan úrslitaleikinn fara upp um deild.
Átta-liða úrslit:
Hamar - Kría
Kormákur/Hvöt - Álftanes
Árborg - Vængir Júpiters
Ýmir - KH
Hvaða lið telur þú að komist upp í 3. deild?
Athugasemdir