Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. ágúst 2021 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
White hvergi sjáanlegur á æfingu Arsenal
Mynd: Getty Images
Það er stórleikur í Ensku Úrvalsdeildinni í dag þegar Arsenal og Chelsea mætast á Emirates í Lundúnarslag kl 15:30.

Varnarmaðurinn Ben White lék sinn fyrsta leik fyrir Arsenal í tapinu gegn Brentford um síðustu helgi.

Stuðningsmenn Arsenal skoðuðu myndir af æfingu liðsins í gær og það vakti mesta athygli að White hafi ekki sést á neinni mynd.

White hefði væntanlega átt að vera í byrjunarliðinu en nú efast stuðingsmenn um að hann sé klár, það hefur ekki fengið staðfest hvort hann muni spila eða ekki.
Athugasemdir
banner
banner