Arnar Hallsson gat verið glaður í dag enda ekki bara búinn að tryggja Aftureldingu sæti í Inkasso-deildinni heldur líka sigur í 2. deild.j
„Mér fannst þeir spila mjög vel og þetta var erfiður leikur," sagði Arnar Hallsson þjálfari Aftureldingar eftir að liðið tryggði sér sigur í 2. deild karla og þar með sæti í Inkasso-deildinni að ári með 1-3 sigri á Hetti á Egilsstöðum í dag.
Lestu um leikinn: Höttur 1 - 3 Afturelding
„Í fyrri hálfleiknum sást greinilega að það var skjálfti í okkur og vantaði yfirvegun og sjálfstraust. Þegar við vorum komnir með bakið upp við vegg eins og svo oft áður í sumar var bara eitt að gera, byrja að moka sig út úr ógöngunum og við gerðum það og kláruðum þetta verðskuldað."
„Mér fannst við vinna deildina verðskuldað, skorum flest mörk og töpum fæstum leikjum. Við erum besta liðið og það er mjög gott."
Nánar er rætt við Arnar í sjónvarpinu hér að ofan. Hann segist þar búast við að þjálfa liðið áfram.
„Ég veit ekki betur, það væru þá sviptingar í Mosfellsbænum,en ég hef áhuga og ef þeir hafa áhuga þá kemur það í ljós."
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir