Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. september 2018 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Bernd Leno ætlast til þess að spila alla leiki
Bernd Leno fær ekkert að spila
Bernd Leno fær ekkert að spila
Mynd: Getty Images
Arsenal keypti þýska markvörðinn Bernd Leno frá Bayer Leverkusen í sumar á 19 milljón punda en hann hefur aðeins leikið einn leik í byrjun tímabils.

Leno spilaði sinn fyrsta leik fyrir Arsenal gegn Vorskla í Evrópudeildinni á dögunum en Petr Cech hefur haldið honum út úr liðinu.

Þýski markvörðurinn er ósáttur við stöðuna og ætlast til þess að spila hvern einasta leik.

„Ég kom hingað til þess að spila hvern einasta leik. Þegar maður hins vegar flytur í annað land og stærra lið, þá þarf maður kannski smá tíma. Þetta er pirrandi en ég held áfram að æfa og bæta mig," sagði Leno.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner