Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en veislan hefst í hádeginu er Fulham og Watford eigast við.
Liverpool og Southampton mætast svo klukkan 14:00 en Liverpool hefur unnið alla fimm leiki sína á tímabilinu auk þess sem liðið lagði Paris Saint-Germain að velli í Meistaradeildinni í miðri viku, 3-2.
Cardiff fær Englandsmeistara Manchester City í heimsókn og Manchester United leikur gegn Wolves. Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley spila gegn Bournemouth.
Brighton og Tottenham mætast þá í lokaleik dagsins klukkan 16:30.
Leikir dagsins:
11:30 Fulham - Watford (Stöð 2 Sport)
14:00 Liverpool - Southampton (Stöð 2 Sport)
14:00 Cardiff - Man City
14:00 Man Utd - Wolves
14:00 Burnley - Bournemouth
14:00 Crystal Palace - Newcastle
14:00 Leicester - Huddersfield
16:30 Brighton - Tottenham (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir