Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 22. september 2018 18:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grikkland: Ögmundur og félagar töpuðu þriðja leiknum í röð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ögmundur Kristinsson stóð í marki Larissa þegar liðið tapaði fyrir Atromitos á útivelli í grísku úrvalsdeildinni.

Ögmundur samdi við Larissa í byrjun ágúst en hann kom til liðsins frá Excelsior í Hollandi.

Ögmundur var að spila sinn fjórða leik fyrir Larissa í dag en hann fór ekki að óskum, hann tapaðist 2-0. Atromitos komst yfir á 54. mínútu og bætti við marki þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Larissa missti mann af velli með rautt spjald á 70. mínútu og það hjálpaði svo sannarlega ekki til. Þetta var þriðja tap liðsins í röð.

Larissa er með þrjú stig eftir fyrstu fjóra leikina. Liðið er í tíunda sæti af 16 liðum.
Athugasemdir
banner
banner