Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. september 2018 22:15
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Chiesa skoraði í sigri FIorentina - Nainggolan sá um Sampdoria
Federico Chiesa skoraði í sigri Fiorentina
Federico Chiesa skoraði í sigri Fiorentina
Mynd: Getty Images
Þrír leikir fóru fram í Seríu A á Ítalíu í dag en Fiorentina vann Spal 3-0 á meðan Inter lagði Sampdoria.

Marko Pjaca, Nikola Milenkovic og Federico Chiesa sáu til þess að Fiorentina lagði Spal. Nýliðarnir í Parma unnu þá Cagliari með tveimur mörkum gegn engu. Roberto Inglese og Gervinho skoruðu mörkin.

Radja Nainggolan gerði þá sigurmarkið er Inter vann Sampdoria á Stadio Luigi Ferraris leikvanginum.

Úrslit og markaskorarar:
Fiorentina 3 - 0 Spal
1-0 Marko Pjaca ('18 )
2-0 Nikola Milenkovic ('28 )
3-0 Federico Chiesa ('56 )

Rautt spjald:Jasmin Kurtic, Spal ('71)
Parma 2 - 0 Cagliari
1-0 Roberto Inglese ('20 )
2-0 Gervinho ('47 )

Sampdoria 0 - 1 Inter
0-1 Radja Nainggolan ('43 )
Athugasemdir
banner
banner