banner
   lau 22. september 2018 23:11
Brynjar Ingi Erluson
Jökull fékk annað höfuðhögg - Leikurinn flautaður af
Jökull Andrésson, markvörður Hungerford á láni frá Reading
Jökull Andrésson, markvörður Hungerford á láni frá Reading
Mynd: Reading
Jökull Andrésson, markvörður Hungerford á Englandi, fékk annað höfuðhögg sitt á stuttum tíma er hann var að spila í forkeppni FA-bikarsins.

Hungerford og Wantage Town áttust við en er staðan var 0-0 á 73. mínútu lenti Jökull í samstuði og þurfti að bera hann af velli. Leikurinn var flautaður af og óvíst er hvernig skal útkljá sigurvegara.

Samkvæmt heimildum Mbl.is. þá er Jökull kominn til meðvitundar eftir atvikið. Hann fékk hné í andlitið og hlaut skurð á vör og nokkrar brotnar tennur.

Þetta er annað höfuðhöggið sem hann fær á stuttum tíma en 14. ágúst lenti hann í svipuðum aðstæðum er Hungerford var að spila í utandeildinni.

Jökull er á láni frá Reading en bróðir hans er Axel Óskar Andrésson, sem leikur einmitt einnig með Reading en er á láni hjá Viking í Noregi.
Athugasemdir
banner
banner