Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. september 2018 18:54
Brynjar Ingi Erluson
Klopp: Reynum að halda áfram á sömu braut
Jürgen Klopp er að gera frábæra hluti með Liverpool
Jürgen Klopp er að gera frábæra hluti með Liverpool
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool á Englandi, var virkilega ánægður með 3-0 sigurinn á Southampton í dag en þetta var sjötti sigur liðsins af sex mögulegum.

Liverpool hefur nú unnið alla sjö leiki sína á tímabilinu í öllum keppnum en liðið hefur unnið sex deildarleiki og einn leik í Meistaradeildinni gegn PSG.

Þetta er í fyrsta sinn sem liðinu tekst að gera þetta í 28 ár en Klopp hafði ekki mikinn áhuga á sögunni fyrir leikinn í dag.

„Ég hafði ekki mikinn áhuga á því að skoða söguna fyrir þennan leik en núna líst mér bara vel á þetta," sagði Klopp.

„Við reynum að halda áfram á sömu braut en leikplanið fyrir næstu vikur er ótrúlegt. Strákarnir eru í góðu ástandi og það hjálpar en sjáum til hvort við getum ekki haldið áfram á sömu braut," sagði Klopp í lokin.

Liverpool á erfiða leiki framundan en liðið mætir Chelsea í deildinini og í deildabikarnum. Þá spilar liðið gegn Napoli áður en það mætir Manchester City í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner