Sir Alex Ferguson er að fylgjast með sínum í Manchester United vinna Wolves 1-0. Það eru 35 mínútur búnar af leiknum en það var Fred sem skoraði mark United með góðu skoti.
Þetta er fyrsti leikurinn sem Ferugson mætir á síðan hann fór í aðgerð vegna heilablóðfalls í maí. Óttast var um ástand hans en hann hefur náð frábærum bata.
Sir Alex hætti sem stjóri United í maí 2013 eftir að hafa unnið 38 bikara á 26 árum við stjórnvölinn. Hann er sigursælasti stjóri í sögu breskrar knattspyrnu. Hann vann úrvalsdeildina þrettán sinnum, Meistaradeildina tvisvar og FA-bikarinn fimm sinnum.
Fyrir leikinn sem hófst klukkan 14:00 var tekið sérstaklega á móti Skotanum. Þegar hann mætti í stúkuna stóðu allir á vellinum upp og klöppuðu fyrir honum.
Miðað við svipbrigðin hafði Ferguson bara nokkuð gaman af þessu. Sannkallað gæsahúðaraugnablik!
A special moment at Old Trafford. #MUFC pic.twitter.com/vU8YWstnk1
— Manchester United (@ManUtd) September 22, 2018
Athugasemdir