„Þetta var ekta haustleikur sem þanniglagað skipti ekki máli. Það vantaði aðeins upp á gæði og tempó fannst mér," sagði Þórhallur Víkingsson eftir 0-0 jafntefli við KR í lokaumferðinni í Pepsi-deild kvenna.
Lestu um leikinn: HK/Víkingur 0 - 0 KR
„Frábært ár hjá okkur þannig lagað, við erum reynslunni ríkari og búin að spila á frekar breiðum hóp leikmanna sem hafa fengið reynslu í sumar en svo er bara að taka næstu skref, við þurfum að taka tvö skref í vetur."
Aðspurður um framhald hans sem þjálfari sagði Þórhallur: „Það þarf bara að skoða það núna eftir mótið hvert framhaldið verður, það er tveggja ára samningur en þetta er alltaf skoðað í lok hvers tímabils."
„Við ætlum að taka eitt til tvö skref í vetur og þessar stelpur sem eru búnar að fá reynslu núna þær bara æfa vel í vetur og taka skrefin og svo sjáum við bara til. Við bætum nú örugglega eitthvað í."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir