Mirror segir að Manchester United telji útilokað að félagið geti fengið Ousmane Dembele frá Barcelona.
United hefur verið að reyna að fá inn sóknarleikmann og hefur Dembele, sem getur spilað á báðum vængjum, verið orðaður við félagið.
United hefur verið að reyna að fá inn sóknarleikmann og hefur Dembele, sem getur spilað á báðum vængjum, verið orðaður við félagið.
En nú þegar Luis Suarez er á förum frá Nývangi er Barcelona ekki tilbúið að láta Dembele fara og United þarf að leita annað.
Manchester United hefur ekki gefið upp allar vonir um að fá Jadon Sancho frá Borussia Dortmund en þýska félagið hefur ítrekað sagt að enski vængmaðurinn sé ekki á förum í þessum glugga.
Sjá einnig:
Sancho fer ekki í þessum glugga
Athugasemdir