Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 22. október 2018 11:37
Elvar Geir Magnússon
Sex leikmenn fjarverandi á æfingu Man Utd í morgun
Alexis Sanchez var ekki með á æfingu í morgun.
Alexis Sanchez var ekki með á æfingu í morgun.
Mynd: Twitter
Alexis Sanchez, Marouane Fellaini, Jesse Lingard, Scott McTominay, Phil Jones og Diogo Dalot voru ekki með á æfingu Manchester United í morgun.

Fyrstu fimmtán mínútur æfingarinnar voru opnar fjölmiðlum en Sanchez kom af bekknum í 2-2 jafntefli gegn Chelsea á laugardaginn.

Antonio Valencia sem hefur misst af síðustu tveimur leikjum var með á æfingunni í morgun.

United mætir Juventus í Meistaradeildinni á morgun.

Næstu tveir leikir United í Meistaradeildinni eru gegn ítalska stórliðinu en þeir leikir gætu ráðið miklu hvað varðar tímabilið hjá Rauðu djöflunum.

Juventus er búið að vinna báða leiki sína í Meistaradeildinni en United er í öðru sæti í riðlinum með fjögur stig. Valencia er með eitt stig og Young Boys án stiga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner