Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. október 2018 19:51
Ívan Guðjón Baldursson
Holland: Kristófer setti þrennu fyrir varalið Willem II
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jong Roda 0 - 4 Jong Willem
Kristófer Ingi Kristinsson (3)
Dimitris Kolovos

Kristófer Ingi Kristinsson var í byrjunarliðinu hjá Jong Willem II sem leikur í hollensku varaliðadeildinni.

Kristófer og félagar heimsóttu Jong Roda í dag og setti Kristófer þrennu í 0-4 sigri. Liðið er með tólf stig eftir fimm umferðir.

Kristófer, sem er 19 ára, hefur ekki fengið mikið af tækifærum með aðalliði Willem II á tímabilinu.

Hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum með aðalliðinu og fengið í heildina um 40 mínútur, þó að mark frá honum hafi bjargað stigi gegn Excelsior í síðasta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner