Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. október 2018 20:33
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Markalaust hjá Sampdoria og Sassuolo
Mynd: Getty Images
Sampdoria 0 - 0 Sassuolo

Sampdoria fékk Sassuolo í heimsókn í síðasta leik helgarinnar í ítalska boltanum.

Bæði lið hafa verið vel af stað í haust og höfðu varkárnina í fyrirrúmi í viðureign liðanna í dag. Fjögur skot hittu á markrammann á 90 mínútum og lauk leiknum með markalausu jafntefli.

Bæði lið skildu yfirleitt hálft liðið eftir á eigin vallarhelmingi í sóknum sínum og verðskuldaði hvorugt liðið meira en stig úr þessum leik.

Sampdoria er í fimmta sæti með fimmtán stig. Sassuolo kemur einu stigi þar á eftir, samhliða Roma og Fiorentina á töflunni.
Athugasemdir
banner
banner