Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. október 2018 14:00
Elvar Geir Magnússon
Mourinho staðfestir að Sanchez verður ekki með á morgun
Sanchez ekki með gegn Juventus.
Sanchez ekki með gegn Juventus.
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez verður ekki með Manchester United á morgun þegar liðið mætir Juventus í Meistaradeildinni.

Jose Mourinho staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag en sex leikmenn United æfði ekki í dag.

„Þeir leikmenn sem æfðu eru klárir, hinir ekki. Það er enginn feluleikur," sagði Mourinho.

Á fréttamannafundinum var hann einnig spurður að því hvort hann hefði áhuga á að taka við Real Madrid en það er krísuástand hjá spænska stórliðinu.

„Nei. Ég er ánægður hér og vil klára samning minn og helst vera lengur. Eina sem ég hugsa um er Manchester United."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner