Tuttosport segir að Marcelo, vinstri bakvörður Real Madrid, vilji fara sömu leið og Cristiano Ronaldo og ganga í raðir Ítalíumeistara Juventus.
Því er haldið fram að Marcelo hafi þegar tilkynnt Real Madrid að hann vilji fara og endurnýja kynni sín af Ronaldo.
Því er haldið fram að Marcelo hafi þegar tilkynnt Real Madrid að hann vilji fara og endurnýja kynni sín af Ronaldo.
Alex Sandro er sem stendur vinstri bakvörður Juve.
Marcelo hefur leikið tæplega 500 leiki fyrir Real Madrid síðan hann kom frá Fluminense 2007.
Hann hefur unnið spænska meistaratitilinn fjórum sinnum og Meistaradeildina jafn oft.
Athugasemdir