Andriy Yarmolenko verður frá í sex mánuði eftir að hafa slitið hásin um helgina. Hann fór í aðgerð í dag sem gekk vel.
Yarmolenko var í byrjunarliðinu er West Ham fékk Tottenham í heimsókn í nágrannaslag á laugardaginn.
Sóknarmaðurinn þurfti að fara af velli eftir 40 mínútur vegna meiðslanna, en Tottenham endaði á að hafa betur með einu marki gegn engu.
Yarmolenko gæti því náð síðustu vikum tímabilsins ef allt gengur að óskum í bataferlinu.
West Ham er í neðri hluta ensku deildarinnar, með sjö stig eftir níu umferðir.
Athugasemdir