Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. október 2018 11:44
Elvar Geir Magnússon
Zlatan óvænt orðaður við Real Madrid
Zlatan er orðinn 37 ára.
Zlatan er orðinn 37 ára.
Mynd: Getty Images
Óvæntar sögur hafa farið í gang um að Real Madrid gæti reynt að fá Zlatan Ibrahimovic í janúar.

Real Madrid er í krísu og sóknarleikur liðsins skugginn af því sem hann var. Brotthvarf Cristiano Ronaldo hefur mikið að segja.

Áður en Marcelo náði að minnka muninn í 2-1 tapinu gegn Levante á laugardaginn hafði Real Madrid farið í gegnum 481 mínútu án þess að skora.

Karim Benzema hefur lítið getað og Real Madrid vill bæta við sig sóknarmanni.

Zlatan gæti reynst tímabundin lausn en hann hefur verið funheitur með La Galaxy í Bandaríkjunum og skorað 22 mörk í 26 leikjum, auk þess að eiga sjö stoðsendingar.

Þrátt fyrir slaka byrjun á tímabilinu er Real Madrid aðeins fjórum stigum á eftir Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner